Evrópuævintýrið heldur áfram.

Haukamenn fagna eftir vítakast Einars Péturs. Mynd: Eva Björk
Haukamenn fagna eftir vítakast Einars Péturs. Mynd: Eva Björk

Meistaraflokkur karla í handbolta lék um helgina tvo leiki í EHF bikarnum er þeir mættu ítölsku meisturunum í SSV Bozen Loacker á Ítalíu. Haukar seldu heimaleikinn sinn og voru báðir leikirnir þar af leiðandi leiknir á Ítalíu um helgina.

Í fyrri leiknum sem var heimaleikur Ítalanna náðu Haukarmenn sér alls ekki á strik og var vörn og markvarsla ekki mikil auk þess sem að 6 víti fóru í súginn. Niðurstaðan varð 6 marka tap 30 – 24 eftir að hafa verið 17 – 14 undir í hálfleik en atkvæðamestir Haukamanna í leiknum voru þeir Einar Pétur og Elías Már með 5 mörk hvor og næstur var Adam Haukur með 4 mörk.

Það var því ljóst að það yrði á brattann að sækja í seinni leiknum eftir úrslitin í þeim fyrri og þar að auka meiddist Adam í fyrri leiknum og var hann ekki með í þeim seinni. Haukamenn byrjuðu seinn leikinn af krafti og ljóst var að þeir ætluðu að selja sig dýrt og náðu stax yfirhöndinni í leiknum og voru yfir í hálfleik 15 – 10 og vantaði Haukunum því lítið upp á til þess að komast yfir samanlagt í einvíginu. Ítalarnir náðu þó að halda í horfinu í þeim seinni og hélst 4 til 5 marka munur á liðinum.

Þegar um 15 sekúndur voru eftir voru Haukar með boltann og yfir í leiknum 25 – 20 og ljóst var að 6 marka sigur myndi duga Haukamönnum til þess að komast áfram sökum reglunnar um fleiri mörk skoruð á útivelli. Gunnar þjálfari tók þá leikhlé og stillti upp í lokasókn liðsins sem endaði með því að Haukamenn fengu vítakast um það leiki sem flautan gall og var því aðeins vítið eftir af leiknum. Einar Pétur fór á punktinn minnugur þess að 6 víti höfðu farið f0rgörðum í fyrri leiknum en Einar var ískaldur á punktinum og skoraði og 6 marka sigur Haukamman staðreynd og Haukar fara því áfam í næstu umferð á fleikir mörkum skoruðum á útivelli. Markahæðstir Haukamanna í leiknum voru eins og í fyrri leiknum þeir Einar Pétur með 7 mörk og Elías Már með 6.

Búið er að draga í næstu umferð og mæta Haukamenn makedónska liðinu HC Zomimak-M í tveimur leikjum í október en ekki er búið að hvort leikið verði heima og heiman eða hvort að báðir leikirnir verði leiknir hér eða þar.

Það er þó skammt stórra höggva á milli hjá Haukamönnum því strax á fimmtudag leika þeir gegn Val í deildinni en sá leikur er kl. 19.30 í Vodafonehöllinni og því um að gera fyrir Haukafólk að mæta og hvetja Haukamenn til sigur í þessum hörkuleik. Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…