Enn gefa Haukastúlkur eftir á lokametrunum

Viktoría Valdimarsdóttir var markahæst í dag með 7 mörkÍ dag lékur Haukastelpur á móti ÍBV í Schenkerhöllinni að Ásvöllum. Leikurinn byrjaði þannig að þegar 5 mörk voru komin á töfluna og staðan 2-3 fyrir ÍBV, voru öll mörk ÍBV úr vítum og annað mark Hauka. Lengst af leiddu ÍBV leikinn en á 24. mínútu jöfnuðu Haukastúlkur 10-10 en staðan í hálfleik var 11-13. 
Sama var uppi á teningnum í fyrrihluta seinni hálfleiks, ÍBV leiddi leikinn en Haukastúlkur fylgdu þeim fast á eftir. 
Þegar seinni hálfleikur var rúmlega hálfnaður var staðan 21-25  og enn möguleiki en botninn datt úr leik Hauka og þær töpuðu 31-24. 
Þetta er nú líklegast eitthvað fyrir þjálfarteymið að skoða, því þetta hefur verið reyndin í síðustu leikjum liðsins að á síðustu mínútunum spila okkar stúlkur langt undir getu. Því gefa lokatölur ekki rétta mynd af leiknum í heild sinni.

Það vantaði alltaf rétt herslumuninn í leik Hauka og mikið var um að skotin í dag færu stöngin út og sum beint á markvörð ÍBV. Einnig fengu ÍBV konur ansi mörg hraðaupphlaup sem Haukastelpur hefðu átt að vera duglegri við að stoppa. Vörnin var lengst af mjög góð og markvarslan ágæt en eins og áður sagði var sóknarnýtingin ekki nógu góð. Marija á ennþá við meiðsli að stríða en kom þó inn á í nokkrar mínútur í seinni hálfleik og setti 3 mörk.  Viktoría var markahæst í leiknum með 7 mörk.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…