Engin miskun í Víkinni og Haukar öruggir áfram

Tjörvi Þorgeirsson kallar stundum fram töfra í handabolta sem fáir getaÍ gærkvöldi heimsóttu Haukapiltar Víkinga heim í 16 liða úrslitum Coca Cola bikarkeppninnar. Eins og flestir vita þá eru Haukar á toppi úrvalsdeildarinnar en Víkingar leika í 1. deild og eru þar í 6. sæti. Því var fyrirfram ekki búist við jöfnum leik í Víkinni og það varð líka raunin. Í fyrrihálfleik sýndu Víkingar þó klærnar og Hauka virkuðu á köflum frekar kærulausir og næst komust Víkingar á 10 – 12 en staðan í hálfleik var 11 – 16. Það virtist sem leikmenn Hauka hafi fengið góða yfirhalningu um værukærni í hálfleik því leikur liðsins var miklu betri í seinni hálfleik og eftir um 8 mínútna leik voru Haukar búnir að skora 5 mörk en heimamenn ekkert. Að lokum fór það svo að Haukar sigruðu örugglega 19 – 37 og því seinni hálfleikinn 8 – 21. Haukar eru því komnir áfram í 8 liða úrslit bikarkeppninnar í ár. 

Það var unun að fylgjast með Haukaliðinu á stórum köflum í seinni hálfleik. Frábært fumlaust spil, flott sirkusmörk og góð barátta í vörninni, vel gert drengir. Giedrius stóð lengst af í markinu og varði ágætlega en svo kom Einar Ólafur inn og hann lokaði markinu á köflum og það er gaman að sjá hvað hann hefur bætt sig mikið í vetur. 

Að hrósa einum leikmanni í svona leik er erfitt en þó verður að segjast að frammistaða Tjörva Þorgeirssonar, sérstaklega í seinni hálfleik, var ótrúleg. Hann virðist hafa þvílíka tilfinningu fyrir spilinu og að senda boltann í sirkusmörkum á hárréttu augnabliki, sem er nefnilega galdurinn við flott sirkusmörk. Þröstur Þráinsson var líka að gera mjög góða hluti og skora falleg mörk úr horninu ásamt því að vera öryggið uppmálað í vítunum.

Víkingar eru gamalt stórveldi í handboltanum, sem maður er vel minntur á þegar maður lítur á veggina í Víkinni, en á einhverjum tímapunkti urðu þeir eftir í uppbyggingu og árangri en eru núna komnir með gamlan jaxl í brúna, Þorberg Aðalsteinsson, og vonandi ná þeir að verða aftur meðal þeirra bestu.

Mörk Hauka: Þröstur Þráinsson 7, Adam Haukur Baumruk 6, Árni Steinn Steinþórsson 5, Einar Pétur Pétursson 5, Þórður Rafn Guðmundsson 4, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 3, Elías Már Halldórsson 3, Tjörvi Þorgeirsson 2, Jónatan Ingi Jónsson 2.

Næstu leikir hjá strákunum verða í deildarbikarnum sem leikinn verður 13. og 14. desember en nánari upplýsingar verða birtar um leið og þær liggja fyrir.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…