Elías Már genginn í raðir Hauka!
Árið 2008 byrjar fjörlega hjá handknattleiksdeildinni í Haukum, því að Elías Már Halldórsson fyrrum leikmaður HK og Stjörnunnar og síðast hjá þýska liðinu Empor Rostock, hefur skrifað undir samning við Hauka og verður Elías Már löglegur með Haukum í næsta deildarleik sem verður þó ekki fyrr en í næsta mánuði.
Elías Már er 24 ára, örvhentur og getur leikið bæði í hægra horni sem og í hægri skyttu.
„Við teljum okkur þurfa að styrkja okkur í þessari stöðu fyrir áframhaldandi átök í deildinni. Þröstur er eini örvhenti hornamaðurinn okkar og hefur átt misjafna leiki í vetur. Enda ungur að árum og þarf aðeins meiri tíma til að bæta leik sinn. Við erum einnig í smá vændræðum með meiðsli örvhentra leikmanna. Arnar Jón Agnarsson er ökklabrotinn og Halldór Ingólfsson er á öðrum fætinum í augnablikinu. Þannig að það passaði mjög vel fyrir okkur að hann væri á heimleið.“ Sagði Aron Kristjánsson aðspurður hvernig það hafi komið til að Haukar hafi leitað til Elías Má.
Nú þegar hlé er á mótinu eru Haukar einir á toppi deildarinnar fjórum stigum á undan næsta liði sem er Stjarnan, hvernig telur Aron að Elías Már eigi eftir að falla inn í hópinn hjá Haukum ? „Ég held að hann eigi eftir að falla vel inn í hópinn. Hópurinn er mjög samstilltur og því er mikilvægt að hann reyni bara að aðlagast hópnum. Hann er keppnismaður og á væntanlega eftir að hjálpa okkur töluvert.“
„Ég sé Elías aðallega fyrir mér sem hornamann en hann hefur þann kost að hann geti leyst af fyrir utan í skyttustöðunni.“
Elías Már gerði samning við Hauka út tímabiliði, en sér Aron Kristjánsson einhverjar líkur á því að sá samningur muni lengjast ?
„Við gerðum samning við hann fram á sumarið. Í samningnum er svo ákvæði um að ræða framtíðina á vissum tímapunkti.“
Við bjóðum Elías Má velkominn í Haukafjölskylduna og vonum að hann eigi eftir að sýna Haukafólkinu hvað í honum býr og hver veit nema hann nái að landa einum bikar hjá Haukum.
ÁFRAM HAUKAR !
– Arnar Daði Arnarsson skrifar.
