Einar Örn á leiðinni heim!

Haukar eru ekki búnir að segja sitt síðasta í leikmannamarkaðnum, því að Einar Örn Jónsson fyrrum leikmaður okkar Haukamanna hefur ákveðið að snúa heim í sumar og hefur skrifað undir 2ja ára samning sem mun taka í gildi í sumar.

Einar Örn leikur nú með þýska handknattleiksliðinu GWD Minden. Einar er á sínu sjötta keppnistímabili sem atvinnumaður og oftar en ekki ávalt staðið fyrir sínu. Einar Örn fór fyrst til Þýskalands og spilaði þar með Wallau Massenheim síðan skaust hann til Torrevieja frá Spáni og svo nú leikur hann með Minden. Einar Örn er örvhentur og leikur oftar en ekki sem hægri hornamaður.

Einar Örn á að baki tugi landsleiki en hann gerði afar gott mót á EM í Svíþjóð árið 2002 en þá lék hann einmitt með stjörnuprýddu liði Hauka, en fór síðan út um sumarið til Wallau Massenheim.

En hvað kom til að Haukar nældu sér í Einar Örn Jónsson ?

„Einar Örn er á heimleið eftir mörg ár í atvinnumennskunni. Einar átti mjög góð ár hjá Haukum áður en hann fór út og er orðinn Haukamaður í dag.“ Sagði Aron Kristjánsson þjálfari og framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar Hauka.
Og Aron hélt áfram;
„Fyrir utan það að vera góður leikmaður þá er Einar afskaplega góður liðsfélagi og mun örugglega reynast okkur góð hjálp í uppbyggingu á ungum leikmönnum. Þegar það kom upp að hann var á heimleið þá var auðvitað ekkert annað í myndinni en að hann kæmi aftur heim í Hauka. “  

Eins og flest allir vita þá birtum við hér frétt í gær þess efnis að Elías Már Halldórsson væri búinn að skrifa undir samning við Hauka sem gildir út þetta tímabil, en mega Haukafólk búast við fleiri fréttum af félagsskiptum ?
„ Það er aldrei að vita. Við munum skoða það betur nú fram á vorið.“ Sagði Aron Kristjánsson að lokum.

Við bjóðum Einar Örn velkominn aftur á Ásvelli og vonum að hann nái að sýna sitt rétta andlit þegar hann kemur á klakann í sumar.

Það eru greinilega spennandi tímar framundan hjá Haukum.

ÁFRAM HAUKAR

    – Arnar Daði Arnarsson skrifar

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…