EHF drátturinn í handbolta

HaukarMótherjar okkar í fyrstu umferð Evrópukeppninnar í handbolta nú í vetur verður Ítalska liðið H.C. Conversano. Við höfum mætt þessu liði tvisvar áður, í Evrópukeppni bikarhafa árið 2002 gerðum við 27-27 jafntefli á Ítalíu en unnum þá hér heima 26-18. Einnig spiluðum við þá tímabilið 2006 -7 og töpuðum þá útileiknum 32-31 og unnum þá heima 32-30. Þetta er því lið sem ætti að henta okkur vel. Heimildum ber ekki saman um dagsetningu leikjanna, en líklegast má þó telja að liðin mætist í lok október. Hér er slóðin dráttinn. http://www.eurohandball.com/ec/ehfc/men/2010-11/round/2/Round+2