Körfubolti

Körfuboltadeild

  • Anna Lóa hefur leik í dag

    Ísland hefur keppni í B deild Evrópukeppninnar í dag í U20 kvenna en leikið er í Kósóvó. Anna Lóa Óskarsdóttir, leikmaður mfl. kvenna, er í liðinu. Ísland á leik kl. 14:30 að íslenskum tíma og eru allir leikir mótsins í beinni útsendingu á vef FIBA Europe sem og í beinni tölfræðilýsingu. Gangi þér vel Anna…

  • Flenard Whitfield til liðs við Hauka

    Körfuknattleiksdeild Hauka hefur samið við Flenard Whitfield að leika með karlaliði félagsins næstkomandi vetur. Flenard sem er framherji hefur áður leikið á Íslandi en hann var í liði Skallagríms veturinn 2016-2017 og var m.a. stigahæsti leikmaður deildarinnar sem og næstfrákastahæsti leikmaður deildarinnar. Flenard er 201 sm á hæð og er 29 ára gamall. Frá því…

  • Haukafólk í U15

    Nú um helgina eru U15 ára landslið Íslands í körfubolta að keppa á móti í Kaupmannahöfn, Copenhagen Invitational. Þar eiga Haukar þrjá fulltrúa en það eru leikmennirnir Ágúst Goði Kjartansson og Dagbjört Gyða Hálfdanardóttir. Einnig er þjálfari mfl. kvk. Ólöf Helga Pálsdóttir í þjálfarateymi U15 stúlkna. Haukar óska þeim alls hins besta og eru afar…

  • Þóra í úrvalsliðinu og Hilmar besti ungi

    Lokahóf KKÍ fór fram á dögunum þar sem leikmenn Domino’s deildanna sem sköruðu fram úr í vetur voru heiðraðir. Þóra Kristín Jónsdóttir var valin í úrvalsliðið sem og prúðasti leikmaður deildarinnar. Hilmar Smári Henningsson var valinn besti ungi leikmaður deildarinnar. Verður hann handhafi Örlygsbikarsins en bikarinn er til minningar um Örlyg Sturluson. Til hamingju Þóra…

  • Emil og Helena mikilvægust

    Lokahóf körfuknattleiksdeildar Hauka: Lokahóf Körfuknattleiksdeildar Hauka fór fram laugardaginn 12. maí í Ólafssal að Ásvöllum í kjölfar velheppnaðs tímabils, en bæði meistarflokkur kvenna og karla urðu deildarmeistarar á tímabilinu ásamt því að Haukar urðu Íslandsmeistarar kvenna. Framtíðin er björt hjá Haukum því þeir urðu einnig Íslandsmeistarar í drengjaflokki og komust í úrslit í stúlknaflokki og…

  • Vinningshafar í happdrætti körfuknattleiksdeildar

    Fulltrúi sýslumanns hefur dregið í jólahappdrætti körfuknattleiksdeildar og má sjá vinningaskránna hér fyrir neðan. Alla vinninga má nálgast á Tunguvegi 3, 220 Hafnarfirði, seinnipartinn eða á kvöldin en fólk er beðið um að hringja á undan sér í síma 864-5481. Við óskum vinningshöfum til hamingju og þökkum fyrir þátttökuna. 1 1057 Icelandair Flugfarseðlar fyrir 2 til…

  • Bílaþvottur körfunnar

    Meistaraflokkur karla í körfuknattleik mun standa fyrir bílaþvotti á sunnudaginn næstkomandi (28.6.2015) en þetta er partur af fjáröflun liðsins sem heldur á sterkt mót á Ítalíu í byrjun ágúst. Staðsetning er við Íþróttahúsið á Ásvöllum, vallarmegin, og stendur yfir milli kl. 14:00 og 20:00. Verð: Fólksbíll 7.000 kr. / Jepplingur 9.000 kr. / Stærri jeppar 11.000…