Miðasala á undanúrslit Maltbikarsins

 Meistaraflokkur karla í körfuknattleik er kominn í undanúrslit Maltbikarsins og mæta þar liði Tindastóls. Leikurinn fer fram miðvikudaginn 10. janúar og hefst kl. 20.00

Miðasala á leikinn er hafin og hvetjum við Haukamenn að fjölmenna á leikinn. Miðar keyptir af Haukum fara óskiptir inn í félagið en það á ekki við ef miði er keyptur t.d. af tix.is. Miðasala er á netinu en einnig verður hægt að fá miða á leikinn á Ásvöllum, sunnudaginn 7. janúar en þá spila bæði lið Hauka í Domino’s deildunum.

KAUPA MIÐA