Haukafólk í U15

Fulltrúar Hauka í Kaupmannahöfn f.v.: Ágúst Goði Kjartansson, Ólöf Helga Pálsdóttir og Dagbjört Gyða Hálfdanardóttir

Nú um helgina eru U15 ára landslið Íslands í körfubolta að keppa á móti í Kaupmannahöfn, Copenhagen Invitational. Þar eiga Haukar þrjá fulltrúa en það eru leikmennirnir Ágúst Goði Kjartansson og Dagbjört Gyða Hálfdanardóttir. Einnig er þjálfari mfl. kvk. Ólöf Helga Pálsdóttir í þjálfarateymi U15 stúlkna.

Haukar óska þeim alls hins besta og eru afar stolt af okkar fólki.

Gangi ykkur vel.