Ágúst, Dagbjörg og Embla í 16 manna hóp

KKÍ hefur birt 16 manna úrtak í U16 og U18 karla og kvenna. Haukar eiga þrjá fulltrúa í þessum hópi. Það eru þau Ágúst Goði Kjartansson(U16), Dagbjört Gyða Hálfdanardóttir(U16) og Embla Ósk Sigurðardóttir(U16). Við í Haukum erum mjög stolt af þeim og óskum þeim góðu gengi á landsliðsæfingunun í mars.

Aðalfundur kkd. Hauka

Aðalfundur körfuknattleiksdeildar Hauka verður haldinn fimmtudaginn 27. febrúar 2020 kl. 20:00 á annarri hæð Íþróttamiðstöðvarinnar. Dagskrá fundarins samkvæmt lögum félagsins. Stjórn kkd. Hauka

Forsala miða á bikarleikinn er í dag og á morgun

Nú styttist í bikarleik Hauka og Skallagríms í undanúrslitum Geysisbikars kvenna sem fer fram n.k. fimmtudag kl. 20:15. Forsala aðgöngumiða verður á Ásvöllum í kvöld og annað kvöld frá kl. 18:30-20:00. Þeir sem vilja ná sér í miða á netinu geta gert það og þá er nauðsynlegt að versla aðeins í gegnum þennan miðasöluhlekk en […]

Haukastúlkur í undanúrslitum Geysis bikarsins

Haukastúlkur eru komin í undanúrslit í Geysis bikar kvenna í körfubolta og fer leikurinn fram 13. febrúar næstkomandi í Laugardalshöll. Mótherjinn er Skallagrímur og ljóst að það verður hart barist um miða í úrslitin í ár. Við hvetjum að sjálfsögðu allt Haukafólk til að mæta á leikinn og hvetja okkar stelpur áfram til sigurs. Hér […]

Dregið í jólahappdrætti kkd. Hauka

Í dag var dregið í jólahappdrætti kkd. Hauka hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að sjá vinningsnúmer með því að smella á meira. Hægt verður að vitja vinninga á skrifstofu körfuknattleiksdeildarinnar á skrifstofutíma frá og með mánudeginum 13. janúar. Nánari upplýsingar veitir Stefán Þór Borgþórsson, framkvæmdastjóri körfuknattleiksdeildar, í síma 697-3960. Vinningur Miðanúmer Nr. 1 Borgarferð […]

Fyrsti leikur ársins

Haukar taka á móti KR laugardaginn 4. janúar kl. 16:00 í Domino´s deild kvenna í 14. umferð Domino´s deildar kvenna. Stelpurnar eru á flottu skriði og hafa unnið núna fjóra leiki í röð og nú síðast unnu þær Íslands-, og bikarmeistara Vals. Áfram Haukar

Actavismótið 2020

Helgina 18.-19. janúar fer fram hið vinsæla Actavismót í körfubolta. Mótið er fyrir krakka í 1.-5. bekk. Þátttökugjald á iðkanda er aðeins 3.000 kr. en allir iðkendur verða leystir út með mótsgjöf. Skráning er til 10. janúar á actavismot@gmail.com

Sala hafin á miðum í jólahappdrættinu

Sala á miðum í jólahappdrætti körfuknattleiksdeildarinar er hafin. Á næstu dögum fara sölumenn deildarinnar af stað að selja miða. Ef þið hittið ekki á sölumann er hægt að kaupa miða á heimaleikjum meistaraflokkana sem og á www.korfubolti.is og eða með því að senda tölvupóst á stefan@haukar.is. Miðinn kostar aðeins 1.500 kr. eins og undanfarin ár. […]

Haukar-Þór Þ. í 32-liða úrslitum Geysisbikarsins

Í kvöld fer fram bikarleikur Hauka og Þórs Þ. í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla, Geysisbikarsins. Hefst leikurinn kl. 19:15. Þessi lið mættust í Domino´s deildinni fimmtudaginn s.l. þar sem Þórsarar höfðu betur 89-80 í hörkuleik. Í kvöld gilda ekki árskort körfuknattleiksdeildarinnar sem og kort meðlima Hauka í horni þar sem þetta er bikarleikur. Grillað frá […]

Árgangamót kkd. Hauka

Laugardaginn 23. nóvember verður árgangamót körfuknattleiksdeildarinnar. Árgangamótið er komið með langa hefð þar sem reyndir leikmenn spila körfubolta og skemmta sér svo saman um kvöldið. Í verður í fyrsta sinn sem einnig verður keppt í kvennaflokki. Er það mikið gleðiefni að þær ætla að mæta og taka þátt. Karlaflokkur: Aldurstakmark 30 ár. Yngsti árgangur sem […]