Bikarsaga karlaliðs Hauka í handboltanum

Annað kvöld, föstudag, verður sannkallaður stórleikur í undanúrslitum Coca Cola bikars karla þegar Haukar mæta ÍBV í Laugardalshöll kl. 20:00. Þriðja árið í röð er leikið eftir nýju fyrirkomulagi þar sem undanúrslitin eru einnig leikin í Laugardalshöll og er þetta annað árið í röð sem Haukastrákar taka þátt. Áður var það þannig að aðeins úrslitaleikurinn […]

Allir Haukafélagar á bikarhátíð í Höllinni

Enn og aftur eru Haukar með bæði meistarflokkslið sín í úrslitakeppninni um bikarmeistartitla ársins.  Þetta er glæsilegur árangur sem sýnir betur en annað, að Haukar eru með ein sterkustu handboltalið landsins bæði í meistaraflokki karla og kvenna. Lykillinn að góðum árangri í Laugardalshöll núna um helgina er að allir Haukafélagar mæti og styðji við bakið á okkar […]

Haukar eru með tvö lið í úrslitum hjá yngri flokkum í bikarnum á sunnudaginn

Haukar eiga tvö hörkulið í úrslitum yngri flokka í bikarnum en úrslitaleikir yngri flokka verða leiknir á sunnudaginn í Höllinni. Á dögunum vann 2. flokkur sé rétt til að keppa í úrslitum þegar þeir unnu frækinn sigur á Aftureldingu í Mosfellsbæ. Lokatölur 23-25 (9-13). Þeir mæta Val í úrslitum og hefst leikurinn kl. 20:00. Þjálfari […]

Bikarsaga kvennaliðs Hauka í handboltanum

Á morgun, fimmtudag kl. 17:15, leika Haukastelpur í undanúrslitum Coca Cola bikarsins. Þriðja árið í röð er leikið eftir nýju fyrirkomulagi þar sem undanúrslitin eru einnig leikin í Laugardalshöll og er þetta því annað árið í röð sem Haukastelpur taka þátt í því og annað árið sem mótherjinn í undanúrslitum er Valur. Áður var það […]

Final 4 nálgast og við opnum fyrir miðasölu á morgun

Um næstu helgi fer fram svokölluð Final 4 helgi í Coca Cola bikarnum. Annað árið í röð státa Haukar af því að vera með bæði liðin sín í undanúrslitum. Stelpurnar ríða á vaðið á fimmtudeginum og mæta ríkjandi bikarmeisturum Vals. Í fyrra spiluðu þær einnig gegn Val í undanúrslitum og töpuðu þá 21-25 (8-13). Valur […]

Haukakonur fá HK í heimsókn á morgun – Viktoría lengi frá

Á morgun, laugardag, heldur Olísdeild kvenna áfram hjá Haukastelpum þegar þær frá lið HK í heimsókn í Schenkerhöllina, leikurinn hefst kl. 16:00. Þær gerðu góða ferð til Vestmannaeyja í vikunni og sigruðu lið ÍBV með einu marki, 27-28 (14-13). Það skyggði á sigurgleðina að Viktoría Valdimarsdóttir meiddist í leiknum og nú er ljóst að meiðsli […]

Haukapiltar mæta Aftureldingu í kvöld á útivelli

Í kvöld, fimmtudag, fara okkar menn í Mosfellsbæinn og ætla sér stóra hluti. Þeir hafa byrjað feikivel eftir áramót og unnið alla sína leiki. Það er greinilegt að endurkoma Elías Más hefur haft góð áhrif á liðið en Elías er þekktur fyrir baráttu og gefst aldrei upp. Leikurinn í kvöld hefst kl. 19:30 og skorum […]

Hauka TV í mikilli sókn

Í vetur hefur verið mikill uppgangur hjá vefsjónvarpinu okkar, Hauka TV. Allir heimaleikir sem ekki eru sýndir á RÚV hafa verið sýndir á Hauka TV, bæði hjá körfunni og handboltanum. Áhorfstölur hafa verið á uppleið og ánægjulegt að lesa kveðjur frá fólki erlendis sem notfærir sér þessa þjónustu en þær hafa borist allt frá Kuwait […]