Knatthús Hauka, vígsla 14. febrúar 2025
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Júlíus Pálsson er látinn eftir erfið veikindi. Júlíus lék handbolta með Haukum um nokkura ára skeið í kringum 1980 og varð m.a. Bikarmeistari í meistaraflokki karla það ár. Júlli Páls eins og hann var gjarnan kallaður var liðtækur í handbolta og spilaði sem skytta og útileikmaður. Júlli bjó lengi í Kaupmannahöfn og rak þar ferðaskrifstofuna…
Þeir voru glaðbeittir félagarnir sem hittust í morgun í Guðsveinsstofu til að spá í spilin í getraunum dagsins. Góð stund með góðum félögum og líflegar umræður með kaffi og kruðirí á kantinum. Að loknum spádómum um gengi liða í enska boltanum var rölt út í nýju knatthöllina sem senn verður tekin í notkun. Loksins, loksins, eru…
English below 🙂 Næstu helgi spilar Meistaraflokkur kvenna tvo spennandi leiki í EHF Bikarnum á móti úkraínska félaginu HC Galychanka Lviv í 16 liða úrslitum. Þetta verður þriðji mótherji stúlknanna í keppninni, en nú fáum við loksins að sjá þær spila á heimavelli hér á Íslandi. Fyrrileikurinn fer fram á laugardaginn 11. janúar klukkan 17:00…
Fyrsti leikur ársins hjá Haukastelpum er spennandi útileikur á móti Stjörnunni í Heklu höllinni. Leikurinn verður einnig í beinni útsendingu á Handboltapassanum. Haukastelpur sitja nú í 3. sæti deildarinnar með 12 stig, og þær munu án efa gefa allt í leikinn til að halda sér í toppbaráttunni. Við hvetjum alla stuðningsmenn til að mæta á…
Um áramót héldu Haukar sína árlegu viðurkenningarhátíð þar sem við veitum okkar góða íþróttafólki viðurkenningar og tilnefndum einstaklinga í kjöri um íþróttakonu Hauka, íþróttakarls Hauka og þjálfara Hauka árið 2024. Viðurkenningarhátíðin var vel sótt og margir fögnuðu góðum árangri á árinu 2024. Elín Klara Þorkelsdóttir, handknattleikskona, var kjörin íþróttakona Hauka, Gunnlaugur Sigurðsson, karate, var kjörinn…
Á viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðabæjar sem haldin var þann 27. desember sl. voru afhentar viðurkenningar til íþróttafólks sem þótti standi sig einstaklega vel á árinu 2024. Elín Klara Þorkelsdóttir, var valin íþróttakona Hafnarfjarðar í annað sinn og íþróttakarl Hafnarfjarðar var valinn Daníel Ingi Egilsson. Elín Klara hefur sýnt að hún er ein besta handknattleikskona landsins. Þá voru þau…
Knattspyrnufélagið Haukar sendir ykkur öllum bestu óskir um gleðilega jólahátið og farsæld á nýju ári. Þökkum ánægjulegar samverustundir og stuðning á árinu sem er að líða.
Strákarnir tryggðu sér áframhaldandi þátttöku í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins um helgina. Haukastrákarnir sigruðu liðið KUR frá Azerbaijan í tveimur leikjum. Fyrri leikur liðanna endaði 30-25 og sá síðari 27-38. Samanlagt sigruðu Haukar einvígið 68-52. Glæsilegur árangur hjá þeim! Dregið verður í næstu umferð á föstudaginn 6. desember. Næsta umferð í Evrópubikarnum fer fram í febrúar….
Stelpurnar tryggðu sér áframhaldandi þátttöku í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins um helgina. Haukastelpur sigruðu liðið HC Dalmatinka Ploče í tveimur leikjum með eins marks mun. Fyrri leikur liðanna endaði 24-23 og sá síðari 17-16. Samanlagt sigruðu Haukar einvígið 41-39. Glæsilegur árangur hjá þeim! Dregið verður í næstu umferð á morgun, þriðjudaginn 19. nóvember, klukkan 10:00. Næsta…