Olísdeildar tvíhöfði

Það verður boðið upp á tvíhöfða á Ásvöllum á laugardaginn þegar að leikið verður í Olísdeildum kvenna og karla. Stelpurnar byrja þegar þær fá Val í heimsókn kl. 17:00. Svo taka strákarnir við kl. 19:15 þar sem Afturelding er mótherjinn. Það hefur ekki gengið sem skyldi í síðustu leikjum hjá liðunum en þau eru staðráðin […]

Okkar menn

Markaðsstofa Hafnarfjarðar veitti  nýlega viðurkenningar til aðila sem lyft hafa bæjarandanum og bætt hafnfirskt samfélag. Þeirra á meðal var formaður Handknattleiksdeildar Hauka til áratuga, Þorgeir Haraldsson, og Sveinn Sigurbergsson hjá Fjarðarkaupum. Voru þeir vel að þessum heiðri komnir. – Til hamingju!

Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild Hauka

Aron Kristjánsson tekur við Haukaliðinu í vor Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Aron Kristjánsson um þjálfun karlaliðs Hauka að loknu yfirstandandi tímabili.  Aron tekur við liðinu af Gunnari Magnússyni sem er að ljúka sínu 5 tímabili með Haukaliðið. Aron þjálfaði Hauka síðast fyrir 7 árum og hefur víða komið við síðan þá. Frá þeim […]

Bikarleikir framundan

Núna í vikunnu fara fram tveir bikarleikir hjá meistaraflokkum karla og kvenna. Strákarnir ríða á vaðið í kvöld, miðvikudagskvöld, þegar að Fjölnisstrákar koma í heimsókn á Ásvelli kl. 19:30. Það er mikið undir og því um að gera fyrir fólk að fjölmenna á Ásvelli í rauðu til að styðja strákana áfram í bikarnum. Minnum á hamborgaratilboðin […]

Fram mætir á Ásvelli

Það er loksins komið að fyrsta leik ársins hjá meistaraflokki karla þegar að þeir fá Fram í heimsókn þriðjudaginn 28. janúar kl. 19:30. Strákarnir töpuðu síðasta leiknum fyrir pásu og mæta því dýrvitlausir á móti sterku Framliði sem sótti í sig veðrið í síðustu leikjum fyrir pásu eftir brösulega byrjun. Það má því búast við […]

Fyrsti leikur á nýju ári

Það er loksins komið að fyrsta leik á nýju ári í handboltanum þegar að stelpurnar í meistaraflokki kvenna spila í Olísdeild kvenna. Leikurinn fer fram á morgun, laugardag, þegar að ÍBV kemur í heimsókn á Ásvelli kl. 16:00. Leikurinn er mjög mikilvægur í báráttunni um sæti í úrslitakeppni en með sigri styrkja stelpurnar stöðu sína […]

BÓNUSMÁNUÐUR

HSÍ og Bónus í samvinnu við aðildarfélög HSÍ bjóða krökkum í 1.-4. bekk að æfa handbolta frítt í janúar. Einnig fá þeir sem skrá sig frían mjúkbolta. Komdu í handbolta. Smelltu á linkinn til að skrá þig: www.hsi.is. Haukar bjóða alla nýja iðkendur velkomna á æfingu á Ásvöllum við toppaðstæður og með faglega þjálfara í […]

Herrakvöld Hauka 2020

Hið árlega herrakvöld Hauka fer fram í veislusalnum á Ásvöllum laugardagskvöldið 25. janúar næstkomandi og opnar húsið kl 19.00. Fjölmennum og eigum góða kvöldstund með góðum vinum Eins og áður eru það Stefán Úlfarsson og meistarakokkarnir á Þremur Frökkum sem sjá um að galdra fram girnilega rétti úr sjávarfangi eins og þeim einum er lagið […]