Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Sigur á ÍR

    Haukastrákar eru ekki nema 5 stigum frá Víkingi Ólafsvík í baráttu liðanna um sæti í efstu deild karla í knattspyrnu. Haukar unnu ÍR 2-0 í gær í Breiðholtinu og enn eru Þrjár umferðir eftir í deildinni 9 stig í pottinum. Það getur því svo sannarlega allt gerst. Við fáum hér að láni umfjöllun fótbolta.net um…

  • Haukar spila við ÍR í kvöld

    Haukar mæti ÍR í kvöld á Hertz-velli þeirra ÍR-inga í 1.deild karla í knattspyrnu. Leikurinn hefst kl.18:00 og með sigri geta Haukar blandað sér af alvöru aftur í toppbaráttu deildarinnar en tapist leikurinn er öruggt að liðið getur gleymt vonum sínum um sæti í deild þeirra bestu á næsta ári. ÍR-ingar eiga í harðri botnbaráttu,…

  • 6.flokkur Íslandsmeistari

    Strákarnir á yngra ári í 6.flokki stráka urðu fyrir stuttu Íslandsmeistarar í 6.flokki karla C-liða eftir sigur á Fylki í úrslitaleik 6-3. Leikurinn sjálfur var nokkuð ævintýri fyrir strákana, þeir komust í þægilega stöðu 3-0 en Fylkir jafnaði í 3-3, þá gáfu Haukastrákar aftur í og unnu leikinn 6-3. Að vonum var mikið fagnað í…

  • Loksins komu mörk á Schenkervellinum!

    Eins og fram kom hér á heimasíðunni léku báðir meistaraflokkar Hauka í knattspyrnu leiki á Schenkervellinum á Ásvöllum um helgina. Strákarnir unnu sinn fyrsta sigur í langan tíma þegar þeir lögðu BÍ/Bolungarvík 3-0 og skoruðu þeir Sigurbjörn Hreiðarsson (víti), Magnús Páll Gunnarsson og Alexander Freyr Sindrason mörk Hauka. Leikurinn var virkilega vel spilaður af hálfu…

  • Leikir á Schenkervellinum í kvöld og á morgun

    Meistaraflokkar Hauka í knattspyrnu eiga leiki í kvöld og á morgun. Stelpurnar leika sinn síðasta leik í sumar þegar þær taka á móti Sindra á Schenkervellinum á Ásvölum kl.20:00 í kvöld. Leikurinn verður leikinn í fljóðljósum ef fólk skyldi velta fyrir sér tímasetningunni. Strákarnir eiga svo mikilvægan leik gegn BÍ/Bolungarvík á morgun, laugardag kl.14:00. Ekkert…

  • Tap á Ólafsvík

    Það gengur lítið hjá Haukum á knattspyrnuvellinum þessa dagana. Meistaraflokkur karla hélt í gærkvöld til Ólafsvíkur þar sem þeir öttu kappi við heimamenn í Víkingi og máttu þola tveggja marka tap 2-0. Leikurinn var jafn framan af en heimamenn náðu að skora á síðustu mínútu fyrri hálfleiks og svo aftur á þeirri fyrstu í síðari…

  • Afrekslína Hauka – Upplýsingafundir

    Fimmtudaginn 23. ágúst eiga allir nemendur sem hafa fengið inngöngu í Afreksskóla Hauka eða á Afrekssvið Hauka að mæta á stuttan upplýsingafund vegna afreksstarfsins sem fer af stað í næstu viku. Allir nemendur yngri en 18 ára eiga að mæta með foreldri/forráðamann með sér á fundinn. Fundur Afreksskólanemanna (9. og 10. bekkingar) verður klukkan 20:00 og…

  • Haukar leika í Ólafsvík

    Heil umferð fer fram í 1.deild karla á morgun og Haukanna bíður heldur betur verðugt verkefni er þeir halda til Ólafsvíkur og mæta þar heimamönnum í Víkingi. Haukaliðinu hefur ekki gengið sem skyldi í undanförnum leikjum en eru þó enn með í toppbaráttudeildarinnar af fullum krafti ef þeir næla í þrjú stig í Ólafsvík. Heimamenn…

  • Tap gegn Fjölni

    Haukastelpur biðu lægri hlut fyrir Fjölni á föstudagskvöldið sl. og urðu lokatölur 2-0 Fjölni í vil en leikurinn fór fram í Grafarvogi. Leikurinn var jafn allan leikinn en hvorugu liðinu gekk mikið að skapa sér færi, þau fáu sem sköpuðust nýttu heimastúlkur hins vegar betur og skoruðu tvö mörk með sköllum úr teignum. Haukastelpur hafa…