Haukar spila við ÍR í kvöld

Haukar Haukar mæti ÍR í kvöld á Hertz-velli þeirra ÍR-inga í 1.deild karla í knattspyrnu. Leikurinn hefst kl.18:00 og með sigri geta Haukar blandað sér af alvöru aftur í toppbaráttu deildarinnar en tapist leikurinn er öruggt að liðið getur gleymt vonum sínum um sæti í deild þeirra bestu á næsta ári. ÍR-ingar eiga í harðri botnbaráttu, sitja í neðsta sæti deildarinnar og fjórum stigum frá öruggu sæti deildinni. Tap í þessum leik myndi því gera stöðu þeirra nær ómögulega. Það er því mikið undir í þessum skemmtilega leik og ástæða til að hvetja fólk til að fjölmenna á völlinn!