6.flokkur Íslandsmeistari

Strákarnir í 6.flokk ásamt þjálfara sínum, Frey SverrissyniStrákarnir á yngra ári í 6.flokki stráka urðu fyrir stuttu Íslandsmeistarar í 6.flokki karla C-liða eftir sigur á Fylki í úrslitaleik 6-3. Leikurinn sjálfur var nokkuð ævintýri fyrir strákana, þeir komust í þægilega stöðu 3-0 en Fylkir jafnaði í 3-3, þá gáfu Haukastrákar aftur í og unnu leikinn 6-3. Að vonum var mikið fagnað í leikslok hjá drengjunum þegar sigurinn var í höfn. Við óskum strákunum og þjálfurum þeirra til hamingju með árangurinn.