Búið að draga í undanúrslit Coca-Cola bikarsins

Coca_ColaÍ gær, þriðjudag var dregið í undanúrslit Coca-Cola bikarsins en þriðja árið í röð eiga Haukar bæði karla- og kvennalið sín í undanúrslitum. 

Til þess að gera langa sögu stutta þá drógust liðin þannig í undanúrslitum að efstu tvo lið Olís-deildanna mætast hjá báðum kynum. Haukar eiga bæði lið sín í efstu tveimur sætum deildanna og er karlaliðið í 1. sæti og mæta þeir því Val sem er í 2. sæti á meðan kvenna liðið er í 2. sæti og mæta þær því Gróttu sem er í 1. sæti.

Kvennaliðið hefur leik fimmtudaginn 25. febrúar kl. 19:00 og leika karlarnir svo daginn eftir kl. 17:15 og er úrslitaleikurinn svo leikinn laugardaginn 27. febrúar. Í hinum undanúrslitaleikjunum þá mætast Stjarnan og Fylkir í kvennaflokki og Stjarnan og Grótta hjá körlunum.

Nánari upplýsingar og umfjöllun um þessa leiki kemur í næstu viku en áður en liðin leika þessa leiki eiga bæði lið eftir að spila einn leik í deildinni en þeir leikir verða leiknir á laugardaginn, 20. febrúar. Þá bjóða Haukar upp á tvíhöfða í Schenkerhöllinni og er um stórleiki hjá báðum liðum að ræði því stelpurnar mæta FH á meðan strákarnir mæta ÍBV, það eru stelpurnar sem hefja veislunna kl. 14:00 og svo kl. 16:00 er komið að strákunum. Það er því um að gera fyrir Haukafólk að fjölmenna á þessa stórleiki til að hita sig upp fyrir bikarhelgina viku seinna. Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…