Bikarmeistararnir fá FH í heimsókn á morgun kl. 20:00

Tveir kappar sem verða í sviðsljósinu á morgun, Patrekur Jóhannesson og Petr Baumruk. Mynd: handbolti.orgÞað er skammt stórra högga á milli hjá mfl. karla í handbolta. Eins og allir vita þá unnu þeir bikarmeistaratitilinn um síðustu helgi þegar þeir lögðu lið ÍR í úrslitum með einu marki, 22 – 21. Í undanúrslitum unnu okkar menn lið FH með tveimur mörkum, 30 – 28. Haukar hafa því lagt FH að velli í öllum viðureignum liðanna í vetur, þar af tvisvar í Olísdeildinni. Í byrjun október áttust liðin við í Schenkerhöllinni og endaði sá leikur 25 – 20 eftir að FH hafði leitt í hálfleik með einu marki , 11 – 12. Næsti deildarleikur var í Kaplakrika 28. nóvember og aftur unnu Haukar, nú með fjórum mörkum, 27 – 31, eftir að hafa verið yfir 11 – 14 í hálfleik. Síðan hafa liðin mæst í Hafnarfjarðarmótinu, Deildarbikarnum og Coca Cola bikarnum og alltaf hafa Haukar hrósað sigri. En á morgun er ný leikur og það er alveg klárt að FH þyrstir í sigur gegn Haukum og vonandi verður engin bikarþreyta í okkar mönnum.

Það var vel mætti í Höllinni þegar liðin áttust við í síðustu viku og vonandi verður sama upp á teningnum á morgun á Ásvöllum. Í hálfleik verður boðið upp á skemmtilega keppni en þar munu fjórar kempur, tvær frá hvoru félagi, eigast við í léttum boltaþrautum. Það er ljóst hvaða tveir mæta frá Haukum en það verða engir smá spaðar, Petr Baumruk og Halldór Ingólfsson. Frá FH mun Guðjón Árnason mæta en ekki er enn ljóst hver hin kempan frá FH verður.
Kveikt verður upp í grillinu kl. 19:00 og klukkan 19:20 mun Patrekur mæta og tala við Hauka í horni og fara yfir málin, eflaust mjög fróðlegt sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Flautað verður til leiks kl. 20:00.

Mætum öll og styðjum Hauka til sigurs!

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…