Afreksfólk verðlaunað á vel heppnaðri krýningarhátíð á gamlársdag

Á mynd frá vinstri: Ágúst Sindri Karlsson formaður Hauka ásamt Frey Sverrissyni, þjálfara ársins, Rögnu Margréti Brynjarsdóttur, íþróttakonu ársins og Frey Brynjarssyni, íþróttamanni ársins.Í hádeginu á gamlársdag var samankominn föngulegur hópur í samkomusal okkar Haukamanna að Ásvöllum er árleg krýningarhátið Hauka fór fram. Hápunktur hennar var krýning á íþróttamanni, íþróttakonu og þjálfara ársins 2010 en þetta var í fyrsta skiptið sem þjálfari ársins var verðlaunaður á þessari hátíð sem var haldin í 16. sinn.

 

 

 

 

Þeir sem útnefndir voru sem Íþróttakarlmaður Hauka ársins 2010:

Birkir Ívar Guðmundsson, handbolta
Freyr Brynjarsson, handbolta
Hilmar Geir Eiðsson, fótbolta
Kristján Ó Davíðsson, karate
Pétur Svavarsson, almenningsdeild
Sverrir Þorgeirsson, skák
Sævar Ingi Haraldsson, karfa

Þær sem útnefndar voru sem Íþróttakona Hauka ársins 2010:

Bryndís Jónsdóttir, handbolta
Eva Lind Ágústsdóttir, karate
Jóna Sigríður Jónsdóttir, fótbolta
Margrét Sverrisdóttir, almenningsdeild
Ragna Margrét Brynjarsdóttir, karfa

 Þeir sem útnefndir voru sem þjálfari Hauka ársins 2010:

Aron Kristjánsson, handbolta
Freyr Sverrisson, fótbolta
Henning Henningsson, karfa
 

Fjölmargir gestir voru mættir í hádeginu á Gamlársdag til að vera viðstaddir þessa skemmtilegu hátíð

Áður en sjálf krýningin fór fram voru heiðursfélagar Hauka boðnir velkomnir með dynjandi lófataki og eftir formlega dagskrá var boðið upp á léttar veitingar, vel heppnað Haukahóf 🙂

 Haukamyndir: Jón Páll Vignisson

 

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…