Föstudaginn 19. september verður Stelpudagur á Ásvöllum fyrir stelpur í 3.-8. bekk. Margt skemmtilegt verður gert og meðal annars verður High School Musical sýnd á risaskjá kl. 17:00.
Þetta er kjörið tækifæri til að koma að prófa handbolta og skemmta þér með vinum þínum í leiðinni.
Í boði verður poppkorn og kók fyrir þá sem vilja.