Um næstu helgi leikur 3.flokkur karla í forkeppni fyrir Íslandsmótið. Leikið er í þremur 5 liða riðlum og einum 4 liða riðli. Riðill Hauka verður leikinn á Strandgötu á laugardag og sunnudag.
3.flokkur Hauka eru með Fjölni, Þór Ak., Selfoss 2 og HK í riðli. Þeir mæta Fj0lni á laugardaginn klukkan 12:00 í fyrsta leik. Síðan leika þeir seinni leikinn sinn á laugardeginum klukkan 15:00 og þá gegn norðanmönnum í Þór.
Á sunnudaginn er þeirra fyrsti leikur gegn Selfoss 2 klukkan 9:00. Þeir ljúka síðan keppni gegn HK klukkan 12:00.
Þjálfari flokksins, er Jón Karl Björnsson. En hann þjálfar einnig 6.flokk karla.