Haukar 34 – 30 Cyprus College Leik lokið!

Meistaraflokkur Karla í handbolta spilar kl. 16:00 seinni leik sinn á móti Cyprus College en leikurinn er spilaður á Kýpur. Þessi leikur er heimaleikur Hauka en fyrri leikurinn sem háður var í gær endaði með 31 – 30 sigri Hauka þar sem Gísli Jón Þórisson skoraði sigurmarkið þegar 4 sekúndur voru eftir.

Við munum koma með nýjustu tölur hingað inn þegar fréttir berast hingað að utan. 

Við minnum fólk á að „refresh-a“ síðuna með því að ýta á f5 á lyklaborðinu.

Sigurbergur og Elías Már voru markahæstir Haukamanna í leiknum með 6 mörk þar af komu 2 mörk Sigurbergs úr vítum, Einar Örn gerði 1 mark og síðan 4 úr vítum, Kári gerði 4, Andri Stefan, Freyr, Arnar Jón og Gísli Jón gerðu 3 mörk hver, Gunnar Berg gerði 1.

Birkir varði 13 bolta og Gísli 1.

Kýpverjarnir náðu mest að minnka muninn niður í þrjú mörk í seinni hálfleik. Vörnin var töluvert betri í dag en í gær, þrátt fyrir að hafa fengið á sig jafn mörg mörk báða dagana. Haukastrákarnir voru reknir 7x útaf í leiknum en heimamenn einungis 3x, og náðu Kýpverjarnir að nýta sér það að vera einu manni fleiri afar vel. Aðstæður voru erfiðar fyrir Íslendingana en mikill hiti var í höllinni.

Þá er það orðið laust, Haukar eru komnir í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, eftir 34-30 sigur á Kýpverjunum. Sigur strákanna var aldrei í hættu en þeir leiddu með 6 – 7 mörkum flest allan leikinn.

Kýpverjanir ætla greinilega ekki að gefast upp og eru búnir að minnka muninn í 5 mörk, 27 – 22.

Haukarmennirnir virðast vera að sýna sitt rétta andlit því þeir eru búnir að auka muninn í 7 mörk 24 – 17.  

Sigurbergur Sveinsson er markahæðstur Haukamanna með 4 mörk þar af 2 úr vítum svo koma Freyr Brynjarsson og Kári Kristján Kristjánsson með 3 sem og Einar Örn Jónsson en hans mörk eru öll úr vítum. Elías Már Halldórsson og Arnar Jón Agnarsson með 2 og Gísli Jón Þórisson með 1.

Birkir Ívar er búinn að vera í rammaum allan hálflekinn og verja 9 bolta.

Janft var á öllum tölum fyristu 20 mínúturnar en þá hrökk Haukavörnin í gang og náði 5 marka forusstu fyrir hlé.

Hálfleikstölur eru 18 – 13 Haukum í vil. 

Haukar virðast ætla að leiða leikinn og er kominir í hina frægu 13 – 10 stöðu. Þannig að það er spurnig hvort sú staða ætlar að reynarst okkur enn og aftur vel.

Fyrstu tölur eru komar í hús 6 – 5 fyrir Hauka og þetta virðist vera mikil barátta.

Mynd: Sigurbergur Sveinsson skoraði 6 mörk í leiknum.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…