Á morgun munu Haukar leika sinn síðasta leik á tímabilinu þegar ÍR-ingar koma í heimsókn. Haukar eru nú þegar búnir að tryggja sér sæti í 1.deild á næsta ári og ekki bara það heldur hafa þeir þegar tryggt sér sigur í deildinni eftir sigurinn á Selfyssingum á Selfossi síðustu helgi.
Leikurinn hefst klukkan 14:00 á staðartíma á laugardaginn og að öllum líkindum mun Þorvaldur Árnason flauta leikinn á og ef allt gengur eftir mun hann einnig flauta leikinn af. Á flöggunum verða þeir félagar Eyjólfur Á. Finnsson og Ægir Magnússon, eftirlitsmaður KSÍ mun svo mæta á staðinn en það er enginn annar en Eysteinn B. Guðmundsson. Mínútu þögn verður fyrir leikinn en er þetta gert til minningar um Ásgeir Elíasson, fyrrum landsliðsþjálfara Íslands, en Ásgeir var einmitt þjálfari ÍR á þessi tímabili, en hann lést síðastliðinn sunnudag.
Haukaspáin spáir blautu veðri á laugardaginn en tekur samt skýrt fram að það getur vel verið að rigningin komi eftir leikinn. Ekki er hægt að tala um hita þegar talað er um hitastigið á leikdag og því kærkomið að koma í góðri úlpu. Ekki er búist við skýstrokk en samt er aldrei að vita.
Í fyrri umferðinni skyldu Haukar og ÍR jöfn 1-1 eftir að ÍR-ingar voru yfir mest allan leikinn en það var Davíð Ellertsson sem jafnaði leikinn fyrir Hauka úr vítaspyrnu.
Gengi ÍR uppá síðkastið hefur ekki verið glæsilegt en þeir hafa hlotið fjögur stig í síðustu fjórum leikjum en síðasti sigurleikur ÍR var gegn Hetti 11.ágúst.
Aftur á móti hefur gengi okkar manna verið fremur gott í undanförnum leikjum en Haukar hafa sigrað fimm leiki í röð og flesta leikina öruggt og vonandi verður enginn breyting þar á, á morgun.
Strákarnir eru staðráðnir í því að fara í gegnum deildina taplausir enda miklu skemmtilegra að taka við bikar eftir sigurleik.
Búist er við fjölmenni á leikinn en ÍR-ingar ætla t.d. að koma á Ásvelli með rútu og tralla og skemmta sér þegar Haukar taka við bikarnum og því ætlum við Hauka fólk að gera enn betur og tralla og skemmta okkur miklu meira þegar OKKAR menn taka við bikarnum.
Það eru VIÐ sem erum meistarar í ár!
Fjölmennum á völlinn Hafnfirðingar og segjum ÁFRAM HAUKAR!
Síðasta umferðin í 2.deildinni verður öll spiluð á laugardaginn klukkan 14:00
Hinir leikirnir sem verða eru;
Höttur Sindri á Vilhjálmsvelli
KS/Leiftur Völsungur á Ólafsfjarðarvelli
Afturelding ÍH á Varmárvelli
Magni Selfoss á Grenivíkurvelli
Í lokin vil ég því byðja fólk um að koma tímanlega á völlinn!