Króksmót 11-13 ágúst
Halló Haukarar í 6. flokki karla!
Nú væri gott að fólk í 6 flokki karla færi að gefa svör um það hvort það ætli á Króksmótið eða ekki. Eins og áður þá þurfum við að greiða staðfestingagjald fyrir hvert lið og því fyrr sem við fáum málin á hreint því líklegra er að strákarnir okkar fái að spila mikið af fótbolta á Sauðárkróki. Ekki viljum við hanga með fjölda manns á varamannabekknum þegar norður er komið:)
Endilega komið upplýsingum til Auðar í foreldrastjórninni, þ.e. bæði ef þið ætlið að fara eða ekki. Með því sparið þið okkur símhringingar og pening úr eigin vasa. Upplýsingar um Auði er hægt að finna á svæðinu hjá 6. flokki karla.
Áfram Haukar!
