Fjörugt jafntefli
Meistaraflokkur karla spilaði sinn næstsíðasta leik í fyrri umferð 1. deildar karla. Leikurinn var gegn Stjörnunni á gervigrasvelli þeirra en veður til knattspyrnuiðkunar var fínt fyrir utan smá vind sem var á vellinum. Fyrir leikinn voru liðin jöfn í deildinni með 8 stig. Í leiknum var Pétur Örn í leikbanni en hann fékk rautt spjald í leiknum á móti KA, í hans stað komu Óli Jón og Davíð Ellerts en þeir tóku út leikbann í leiknum á móti KA.
Byrjunarlið Hauka var þannig að Amir var í markinu og í öftustu línu voru Davíð Ellerts, Óli Jón, Jónas og Albert sem jafnfram var fyrirliði. Á miðjunni voru Kristján Ómar, Edilon, Hilmar Geir og Hilmar Emils fyrir framan miðjuna en fyrir aftan Jónmund sem var í fremstu víglínu var Ómar Karl.
Leikurinn byrjaði nokkuð fjörlega því strax á 3. mínútu fékk Guðjón Baldvinsson sannkallað dauðafæri en hann skaut í Amir sem var lagstur. Á næstu mínútum skiptust liðin á að sækja en sköpuðu sér bara fáein hálffæri. Óli Jón átti frábæra sendingu inn fyrir á Jónmund á 21. mínútu en Jónmundur fékk Stjörnumann á móti sér og lék á hann en skaut svo góðu skoti sem Hannes Þ. Halldórsson markmaður Stjörnunnar varði vel.
Guðjón Baldvinsson fékk annað sannkallað dauðafæri á 36. mínútu en þá fékk hann boltann alveg við mark Hauka en skaut í stöng. En Guðjón bætti fyrir klúðruðu færin því á 37. mínútu gaf Björn Másson góða fyrirgjöf á Guðjón sem lagði boltann snyrtilega í nær hornið og staðan orðin 1 -0 Stjörnunni í vil og þannig var staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik.
Haukar gerðu eina breytingu á liði sínu í hálfleik en þá kom Guðjón inn og Jónas fór út en með þessari breytingu fóru Haukar í 3 manna vörn með þá Óla Jón, Albert og Davíð og fyrir framan þá á köntunum voru Edilon og Ómar Karl. Á miðjunni voru Kristján, Guðjón og Hilmar Geir og tveir frammi voru Jónmundur og Hilmar Emils.
Á 52. mínútu fékk Ómar Karl gult spjald fyrir að stöðva skyndisókn hjá Stjörnunni. Þessar breytingar í hálfleik lífguðu sóknarleik Hauka til mikils muna og þessi sóknarþungi bar árangur á 66. mínútu átti Óli Jón aftur glæsilega sendingu inn fyrir á Jónmund en hann skaut í markmann Stjörnunnar sem kom vel út á móti en frá honum fór boltinn í einn Stjörnumann og þaðan barst boltinn til Hilmars Emils sem renndi boltanum í autt markið og Haukar búnir að jafna.
Haukar gerðu aðra breytingu á liði sínu á 75. mínútu en þá kom Árni inn og Ómar Karl út. Haukar voru nálægt því að komast yfir á 81.mínútu en þá átti Guðjón góða sendingu frá vinstri kantinum inn á Hilla E sem skaut í fjær hornið en Hannes Þ. Halldórsson rétt náði að blaka boltanum í burtu. Mínútu síðar gerðu Haukar sína síðustu breytingu á liði sínu en þá fór Edilon út og Bjarki Jóns kom inn en við þessa breytingu fóru Haukar í uppstillinguna 4-4-2.
Á síðustu mínútunum reyndu bæði lið að stela sigrinum en höfðu ekki erindi sem erfiði og leikurinn endaði 1 1 en það var einn ljós punktur sem hægt er að taka með sér úr þessum leik en það er það að Hauka eru farnir að skapa sér færi og það er góðs viti.
Næsti leikur Hauka er á móti Víkingi frá Ólafsvík en sá leikur er á Ásvöllum þann 13. júlí klukkan 20:00 og hvet ég sem flesta til að mæta á þann leik því sigur í þessum leik er mjög mikilvæt fyrir Hauka.
