Jafntefli á Hlíðarenda

Í kvöld fóru okkar menn í heimsókn á Hlíðarenda og öttu þar kappi við Valsmenn. Aðstæður til knattleiks voru ekki upp á það besta, rigning og völlurinn blautur og þungur. Þrátt fyrir það sást oft bregða fyrir ágætis spili.

Liðið í kvöld: Jöri; Davíð (Ómar Karl), Darri, Óli Jón, Pétur; Edilon, Kristján Ómar, Goran, Gummi Magg (Zoran); Sævar, Arnar Steinn.

Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu, enda okkar menn að berjast uppá líf og dauða. Ef eitthvað var vorum við betri aðilinn í fyrri hálfleik, í það minnsta mátti ekki sjá á milli hvort liðið var í neðsta sæti og hvort var í því efsta.
Eins og áður sagði einkenndist leikur liðanna af mikilli baráttu og fá færi sem litu dagsins ljós. Þó náðu heimamenn að skora rétt fyrir leikhlé og leiddu 1-0 þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik.

Sama barátta var uppá teningnum í seinni hálfleik, en þó færðu heimamenn sig aðeins meira uppá skaftið. Líkt og í fyrri hálfleik náðu liðin þó vart að skapa sér færi og voru varnir beggja liða nokkuð vel skipulagðar og gáfu fá færi á sér.
Okkar menn spiluðu þó skynsamlega, reyndu að halda boltanum á jörðinni og spila í fæturnar á mönnum enda sást oft á tíðum ágætis spil sem þó náði bara upp að vítateig en þá fjaraði undan því.
U.þ.b. sex mínútum fyrir leikslok kom þó eitt besta færi leiksins þegar varnarmaður Vals ætlaði að skalla boltann aftur á markmanninn, en hitti hann ekki betur en svo að boltinn virtist stefna beina leið í netið þegar markmaðurinn rétt náði að slá hann í horn.
Uppúr horninu náðu okkar menn svo að jafna leikinn. Boltinn barst til Sævars sem var rétt fyrir utan teig, hann gerði það eina rétta í stöðunni, skaut á markið og boltinn söng í markhorninu eftir að hafa átt viðkomu í varnarmanni heimamanna. Staðan 1-1.

Síðustu mínúturnar voru þrungnar spennu þegar bæði lið gerðu sig líkleg til að skora sigurmarkið. Valsmenn fengu þó hættulegasta færið, en Jöri gerði geysilega vel þegar hann varði skalla frá sóknarmanni Valsmanna. Lokatölur sem sagt 1-1, sanngjörn úrslit miðað við gang leiksins.

Þó svo að Haukar hafi vissulega viljað fá öll stigin þrjú í kvöld þá verður að segjast að það eru virkilega góð úrslit að fara heim af Hlíðarenda með eitt stig í farteskinu. Miðað við baráttuna sem liðið sýndi í þessum leik þá á liðið fullt inni og ef rétt er haldið á málum þá eigum við fulla möguleika á að bjarga sæti okkar í deildinni.

Næsti leikur verður síður en svo auðveldur, þegar við fáum HK í heimsókn á Ásvelli. Ef liðið spilar af sömu ákveðni og í kvöld er enginn vafi á því að sigur vinnst í þeim leik. Leikurinn fer fram mánudagskvöldið 9.ágúst og þangað verða allir að mæta og styðja við liðið.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…