Nú er rétt um mánuður í að Íslandsmótið í handknattleik hefjist. Já þið lásuð rétt… sumarið er á enda runnið og enn einn handboltaveturinn er að ganga í garð. Íslandsmótið hefst í kringum 18. september hjá strákunum og 20. september hjá stelpunum.
Niðurröðun Íslandsmótsins er enn ekki fullkláruð en vonandi mun það klárast fljótlega og endanlega mótaniðurröðun því fara að birtast landsmönnum. Samkvæmt drögum sem hægt er að finna á heimasíðu Handknattleikssambandsins leika strákarnir sinn fyrsta leik 18. september og stelpurnar sinn fyrsta leik 20. september. Taka bæði liðin á móti liði Stjörnunnar í fyrsta leik. Dagsetningarnar geta eitthvað breyst en að sjálfsögðu munum við birta endanlega niðurröðun eins fljótt og hægt er.
Strákarnir okkar eru núverandi Íslandsmeistarar. Að sjálfsögðu gerum við Haukamenn okkur vonir um það að strákarnir haldi titlinum á Ásvöllum. Einnig vonum við að þeir bæti við titlum, s.s. bikarmeistaratitlinum. Einnig vonum við að sjálfsögðu að einhverjir titlar skili sér í hús hjá stelpunum okkar.
Strákarnir okkar leika í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í ár, en þeir léku ekki í Evrópukeppni í fyrra. Strákarnir okkar drógust á móti liði frá Kýpur, Cyprus Collage. Báðir leikirnir verða leiknir helgina 6. og 7. september. Sigri strákarnir í þessum viðureignum leika þeir í riðli með MKB Veszprém KC frá Ungverjalandi, SG Flensburg-Handewitt frá Þýskalandi og ZTR Zaporozhye frá Úkraníu.
En nú er bara málið að fara að hita sig upp fyrir veturinn og rifja upp gamla leiki og fleira. Við munum hér á síðunni birta upprifjanir af gömlum leikjum og fleira næstu vikurnar.
ÁFRAM HAUKAR!!!