Byr býður á leikinn!

15. mars klukkan 16:00 Ásvellir-  Haukar – HK – FRÍTT INN

Á morgun, laugardag verður sannkallaður stórleikur á Ásvöllum, þegar HK, Handknattleiksfélag Kópavogs, mun etja kappi við okkar menn. Fyrir leikinn eru við á toppi deildarinnar með 32 stig en HK í 5.sæti með 26 stig, jafn mörg og Stjarnan en HK búnir að spila einum leik minna og með sigri geta þeir komist við hlið Framara í 2. & 3.sæti deildarinnar. En aftur á móti, sigri Haukar á morgun, mun næsta lið vera 6 stigum á eftir Haukum, sem er jú bara gott mál.

Eftir jafnteflis leikinn á Akureyri hafa komið þrír góðir sigrar hjá Haukum í röð, gegn Fram, Stjörnunni og  UMFA, en Aron Kristjánsson þjálfari Hauka hefur samt verið óánægður með það að strákarnir séu ekki búnir að sigra  með " stærra " mun.

Gengi HK hefur einnig verið gott í síðustu þremur leikjum, eða eftir jafnteflis leik gegn Akureyri, hafa þeir sigrað þrjá leiki í röð, gegn Íslandsmeisturum Vals, Eyjamönnum og Frömurum.

Þau fjögur stig sem í boði hafa verið í þeim leikjum sem þessi lið eru búin að mætast í ár hafa öll farið til okkar og því er engin ástæða til að leyfa HK að fá síðustu tvö stigin á morgun.

Leikurinn hefst eins og fyrr segir klukkan 16:00, á Ásvöllum, en BYR – Sparisjóður, aðalstyrktaraðili handknattleiksdeildar ætlar að bjóða ÖLLUM frítt á leikinn, og því er ekkert að vandbúnaði fyrir allt Haukafólk, alla Hafnfirðinga og allt áhugafólk um handbolta og íþróttir hér á landi að kíkja við í Hafnarfjörðinn að sjá góðan og spennandi handboltaleik.

Auk leiksins á morgun, verður þetta í boði :

  • Forleikur 7.flokks, klukkan 14:45 !
  • BYR – Sparisjóður, gefur tíu heppnum áhorfendum vinninga í hálfleik
  • Boltaþrautir og andlitsmálning fyrir yngri kynslóðina
  • Síðast en als ekki síst mun 8.flokkur hlaupa með leikmönnum inn á völlinn á morgun og vera fánaberar.

Sjáumst á morgun í góði skapi – ÁFRAM HAUKAR !

– Arnar Daði Arnarsson

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…