Strákarnir okkar fóru í heimsókn í Mosfellsbæinn í kvöld þar sem þeir léku gegn heimamönnum í Aftureldingu.
Leikurinn var jafn til að byrja með og voru heimamenn ávallt skrefinu á undan þar til í stöðunni 5-5. Þá komust okkar menn í þriggja marka forskot 8-5 og héldu forystunni út leikinn og sigruðu að lokum 32-26.
Þar sem Fram sem var í öðru sæti fyrir umferðina í kvöld tapaði gegn HK og komust Valsmenn þar með upp fyrir þá. Okkar strákar hafa því fimm stiga forskot á toppi deildarinnar, eru með 32 stig, Valur er í öðru sæti með 27 stig og í 3. og 4. sæti eru HK og Fram með 26 stig.
Næsti leikur strákanna er á laugardaginn þegar þeir taka á móti HK á Ásvöllum.