Stelpurnar byrja aftur eftir hlé
Þá er komið að því að stelpurnar okkar spila aftur eftir jólafrí. Fyrsti leikurinn þeirra er í kvöld, laugardagskvöld, klukkan 20:00 í Digranesi.
Stelpurnar þurfa á öllum stuðningi áhorfenda að halda. Díana er að fara á sinn gamla heimavöll og heimsækja gömlu lærisveina sína. Það er því um að gera að hafa kvöldmatinn snemma annað kvöld og skella sér með alla fjölskylduna á handboltaleik klukkan 20.
Athugið að leikurinn byrjar klukkan 20:00 en ekki 18:00 eins og áður hafði verið auglýst.
