Einar Örn á leiðinni heim!
Haukar eru ekki búnir að segja sitt síðasta í leikmannamarkaðnum, því að Einar Örn Jónsson fyrrum leikmaður okkar Haukamanna hefur ákveðið að snúa heim í sumar og hefur skrifað undir 2ja ára samning sem mun taka í gildi í sumar.
Einar Örn á að baki tugi landsleiki en hann gerði afar gott mót á EM í Svíþjóð árið 2002 en þá lék hann einmitt með stjörnuprýddu liði Hauka, en fór síðan út um sumarið til Wallau Massenheim.
En hvað kom til að Haukar nældu sér í Einar Örn Jónsson ?
„Einar Örn er á heimleið eftir mörg ár í atvinnumennskunni. Einar átti mjög góð ár hjá Haukum áður en hann fór út og er orðinn Haukamaður í dag.“ Sagði Aron Kristjánsson þjálfari og framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar Hauka.
Og Aron hélt áfram;
„Fyrir utan það að vera góður leikmaður þá er Einar afskaplega góður liðsfélagi og mun örugglega reynast okkur góð hjálp í uppbyggingu á ungum leikmönnum. Þegar það kom upp að hann var á heimleið þá var auðvitað ekkert annað í myndinni en að hann kæmi aftur heim í Hauka. “
Eins og flest allir vita þá birtum við hér frétt í gær þess efnis að Elías Már Halldórsson væri búinn að skrifa undir samning við Hauka sem gildir út þetta tímabil, en mega Haukafólk búast við fleiri fréttum af félagsskiptum ?
„ Það er aldrei að vita. Við munum skoða það betur nú fram á vorið.“ Sagði Aron Kristjánsson að lokum.
Það eru greinilega spennandi tímar framundan hjá Haukum.
ÁFRAM HAUKAR
– Arnar Daði Arnarsson skrifar
