Í kvöld spiluðu strákarnir gegn HK í toppslag N1 deildarinnar.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var staðan í hálfleik 14-13 okkar strákum í vil í hálfleik. Í byrjun seinni hálfleiks var leikurinn áfram jafn en um hann miðjan skoruðu okkar strákar 6 mörk gegn aðeins einu og komust í stöðuna 25-19. HK náði að minnka muninn niður í eitt mark en af hörku náðu okkar menn að verja sigurinn sem að lokum vannst 30-26.
Tveir leikmenn skoruðu 6 mörk fyrir Hauka í kvöld en svo skemmtilega vill til að það var annars vegar næst yngsti leikmaður liðsins og hins vegar elsti leikmaður liðsins. Þetta eru að sjálfsögðu þeir Sigurbergur Sveinsson og Halldór Ingólfsson.
Hjá HK var Ólafur Bjarki Ragnarsson markahæstur með 8 mörk.
Nú er komið jólafrí hjá strákunum í N1 deildinni. Hins vegar leika þeir í deildarbikarkeppninni milli jóla og nýárs en þar mæta þeir liðinu sem er í 4. sæti deildarinnar föstudaginn 28. desember í Laugardalshöll klukkan 18:30. Sigurliðið úr þeim leik leikur svo til úrslita á laugardeginum klukkan 16:00.
Eins og staðan er núna verður mótherji strákanna í undanúrslitum lið Stjörnunnar en Valur er með jafnmörg stig og Stjarnan í 5. sæti. Stjarnan leikur gegn Aftureldingu á morgun, laugardag, og Valur leikur gegn Fram á sunnudag. Stjarnan á svo eftir að leika gegn Fram og Valur gegn HK 19. desember. Það verður því eitt af þessum fjórum liðum sem við mætum: Stjarnan, Valur, Fram eða HK.
Næsti leikur strákanna í deildinni verður svo landsleikjafrí 1. febrúar á næsta ári.