Eins og við greindum frá í gær, þá er stórleikur í Eimskipsbikarnum á morgun, leikur Vals og Hauka í Vodafone-höllinni á Hlíðarenda klukkan 16:00. Við fengum nokkra leikmenn meistaraflokks til að segja okkurhvernig stemmingin væri fyrir leiknum hjá liðinu. Hér fyrir neðan eru svör leikmannana.
Aron Kristjánsson, þjálfari liðsins; „Hún er mjög góð. Við tönkuðum slatta af sjálfstrausti á móti Stjörnunni í síðasta leik og erum klárir í bikarslaginn. Bikarleikir eru alltaf sérstakir og eru það sér lögmál sem gilda þar. Hungrið í sigur er afgerandi í bikarleikjum!“
Magnús Sigmundsson, hinn markvörður Hauka; „Stemmingin er bara góð hjá okkur enda gengur vel í deildinni enda hefur leikur okkar batnað leik frá leik og þá sérstaklega varnarlega. Með Vals leikinn er þetta bara 50/50 leikur enda þeir búnir að vera að spila vel undafarna leiki en við erum taplausir í nýju höllinni þeirra og stefnan er að halda því þannig“
Jón Karl Björnsson, hornamaður og vítaskytta liðsins; „Heyrðu stemmningin er svona svakalega góð fyrir leiknum á sunnudag við Val. Þetta verður væntanlega hörkuleikur eins og hinir tveir í deildinni þar sem við unnum með einu á Hlíðarenda og svo jafntefli heima. Valsarar eru sterkir núna og eru á smá skriði og þá er það bara að stoppa það og tryggja okkur sæti í 4 liða úrslitum í bikar og að sjálfsögðu ætlum við að reyna að komast í Höllina“
Freyr Brynjarsson, hornamaður liðsins; „ Mér persónulega lýst mjög vel á þennan leik og hlakka ég mikið til að koma á
Arnar Jón Agnarsson, ein af fjölmörgu stórskyttum liðsins; „ Stemmingin er góð. Flottur leikur á fimmtudaginn (gegn Stjörnunni) og nú verðum við bara að halda áfram og mæta ferskir í leikinn á móti Val. Þetta er nú bikarleikur og það er komin tími á bikartitill hjá okkur Haukamönnum “
Kári Kristján Kristjánsson, línutröll liðsins; „ Ef að okkar fólk mætir eins vel og núna síðast í Mýrina og hvetur okkur eins og þau gerðu, þá skiptir ekki neinu máli hvort við spilum í Dótafónhöllinni eða einhverstaðar annarstaðar “
– Arnar Daði Arnarsson skrifar.