Stelpurnar úr í bikarnum

Það er ekki hægt að segja að handboltinn sem stelpurnar okkar buðu upp á í síðari hálfleik gegn Stjörnunni í dag hafi verið glæsilegur. Stelpurnar töpuðu leiknum 34-30 eftir að hafa verið undir 16-15 í hálfleik.

Stelpurnar okkar byrjuðu vel. Þær skoruðu fyrsta markið og komust svo í 3-1. Leikurinn var mjög jafn og spennandi allan fyrri hálfleikinn og skiptust liðin á að vera með forystu. Staðan í hálfleik var eins og áður sagði, 16-15.

Í síðari hálfleik gjörsamlega hrundi leikur okkar stelpna. Þær virtust hræddar við Florentinu Grecu í marki Stjörnunnar og létu hana verja hvert skotið á fætur öðru frá sér. Stjarnan náði um miðjan síðari hálfleik tíu marka forskoti, 31-21, en okkar stelpur gáfu aðeins í undir lokin en það kom of seint. Þær náðu að minnka muninn í 34-30 sem urðu lokatölur.

Næsti leikur stelpnanna er á sunnudaginn klukkan 18:00 þegar þær mæta Fram á heimavelli. Við hvetjum alla til að mæta á völlinn og styðja stelpurnar okkar í þessum gífurlega mikilvæga leik sem jafnfram verður síðasti leikur þeirra fyrir langa pásu í deildinni.