Myndir frá Hafnarfjarðarmóti 6.bekkinga

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá Hafnarfjarðarmóti 6.bekkinga í handbolta sem fram fór í Íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn 10. nóvember. Greinilegt er á myndunum að mótið heppnaðist vel og allir voru ánægðir. Mótið var samvinnuverkefni Hauka, FH og HSÍ og tókst í flesta staði vel að sögn mótshaldara.


Krakkarnir úr Setbergsskóla


Strákarnir úr Lækjarskóla í flottu búningunum


Mótsstjórar að störfum


Tilbúin í markinu


Líf og fjör á bekknum


Haukastrákar úr Lækjarskóla


Krakkarnir úr Hvaleyrarskóla að bíða á milli leikja


Áhorfendur fylgdust spenntir með


Bæjarstjórinn lét sjá sig


Upphitun


Í hádeginu var hádegismatur og allir biðu í röð


Mikið er gott að fá að borða


Pizzurnar runnu út


Aston Villa maður 🙂


Verið að bíða eftir pizzu og Svala


Krakkarnir stóðu sig vel í röðinni


Og allir settust niður og fengu sér að borða


Pizzaklúbburinn


Gott að geta spjallað yfir hádegismatnum


Krakkarnir stóðu sig vel í hádeginu og voru til fyrirmyndar


Pizzan var greinilega mjög góð og Svalinn líka

Við þökkum krökkunum fyrir þátttökuna og FH og HSÍ fyrir samstarfið.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…