Skelfilegur síðari hálfleikur!!
Í kvöld tóku stelpurnar okkar á móti Stjörnustelpum á Ásvöllum. Okkar stelpur byrjuðu mjög vel og komust fljótlega í 10-4. Þá tók Aðalsteinn, þjálfari Stjörnunnar, leikhlé og Stjörnustelpur náðu að minnka muninn fyrir hálfleik í 11-9.
Síðari hálfleikurinn var skelfilegur hjá okkar stelpum. Þær skoruðu aðeins 5 mörk og ekkert gekk. Stjörnustelpur náðu um miðjan hálfleikinn að komast yfir, í stöðunni 15-16, og tók Díana leikhlé í stöðunni 15-17. Eftir það skoruðu okkar stelpur eitt mark á móti einu Stjörnumarki.
Markahæst í liði okkar var Hanna Guðrún með 8 mörk, þar af 7 í fyrri hálfleik. Nína skoraði 3, Harpa og Ramune 2 og Erna Halldórs 1.
Hjá Stjörnunni skoraði Rakel Dögg Bragadóttir 8, Ásta Agnarsdóttir og Ásdís Sigurðardóttir 3 og Aline Petrache og Sólveig Lára Kjærnested 2 mörk hvor.
Næsti leikur stelpnanna er á laugardaginn þegar þær fara í heimsókn í Fylkishöllina og leika gegn nýliðum Fylkis klukkan 16:00.
