Næstkomandi laugardag leika strákarnir fyrsta heimaleik vetrarins í N1 deildinni. Þá taka þeir á móti ÍBV klukkan 16:00.
Í tilefni dagsins ætlum við Haukafólk að gera okkur glaðan dag og halda dag yngri flokkanna. Dagskráin hefst klukkan 15:00 með boltaþrautum í sal, andlitsmálningu og fleira. Allir 16 ára og yngri fá frítt á leikinn og allir iðkendur deildarinnar fá miða heim á æfingum í vikunni sem þeir geta skipt í miðasölunni fyrir leikinn og fengið miða fyrir alla fjölskylduna, mömmu, pabba, systkini, ömmu, afa og alla sem vilja koma með.
Á meðan dagskránni stendur og fram að leik verður getraun í gangi og verða dregnir út veglegir vinningar í hálfleik.
Haukar í horni ætla að halda kynningarfund fyrir veturinn og verður hann auglýstur síðar í vikunni.