Frítt á leikinn í kvöld

Það er komið að því!! Stelpurnar leika fyrsta leikinn í N1 deildinni í dag. Þær fara í heimsókn í Framhúsið og leika þar gegn heimastelpum. Leikurinn hefst klukkan 20:00 og aðgangur á leikinn er ókeypis í boði Heklu. Fjölmennum á leikinn og styðjum stelpurnar okkar til sigurs í fyrsta leik vetrarins.

N1 deildin

Karlamolinn: Á þriðjudaginn sögðum við frá leik Vals og Hauka á Hlíðarenda sem fram fór tímabilið 1995 – 1996. Þeim leik lauk með jafntefli, 19-19, þar sem m.a. tveir Haukamenn fengu rautt spjald. Þetta sama tímabil mættust liðin í Strandgötunni í fyrsta leik ársins 1996 þann 6. janúar.
Eins og í flestum leikjum þessara bræðrafélaga var mikil spenna og staðan í hálfleik 15-13 Valsmönnum í vil. Leiknum lauk svo með 27-27 jafntefli, mun meira skorað í þessum leik en þeim fyrri en eins og svo margoft gerðu urðu liðin að deila með sér stigunum. Markahæstur í liði Hauka var eins og svo oft áður Gústaf Bjarnason með 9 mörk. Hinrik Örn Bjarnason kom næstur með 5 og loks núverandi þjálfari okkar manna, Aron Kristjánsson, með 4. Jón Freyr Egilsson og Halldór Ingólfsson skoruðu 3 mörk hvor, Gunnar Gunnarsson 2 og Petr Baumruk aðeins 1 mark.
Markahæstur í liði Vals var núverandi leikmaður Ciudad Real á Spáni, Ólafur Stefánsson, með 7 mörk, næstur kom Skúli Gunnsteinsson með 6, þá Davíð Örn Ólafsson og Valgarð Thoroddsen með 4 hvor, núverandi framkvæmdastjóri Vals, Dagur Sigurðsson, skoraði 3, Eyþór Guðjónsson skoraði 2 og Jón Ríkharð Kristjánsson 1.
Dómararnir í leiknum voru hinir kyngimögnuðu Guðjón L. Sigurðsson og Rögnvald Othar Erlingsson.
Þetta tímabil endaði Valur í 2. sæti Nissan deildarinnar og Haukar í 4. sæti. Deildarmeistarar þetta árið voru KA menn og í 3. sæti var Stjarnan.

Kvennamolinn: Haustið 1997 voru Haukastelpur þáverandi bikarmeistarar líkt og þær eru nú. Fyrsti leikurinn tímabilið eftir sigurinn í SS bikarnum var eins og í ár gegn Fram. Að vísu var sá leikur spilaður á heimavelli Hauka en ekki í Framhúsinu eins og leikurinn í dag.
Framstelpur voru yfir þegar flautað var til hálfleiks, 13-12. Þegar flautað var til leiksloka voru okkar stelpur búnar að snúa við blaðinu og sigruðu 25-23. Markahæst í liði Hauka var Judit Esztergal með 8 mörk, næst kom Auður Hermannsdóttir með 7 mörk, Harpa Melsted skoraði 4 mörk, og Thelma Björk Árnadóttir, Hulda Bjarnadóttir og Björg Gilsdóttir skoruðu 2 mörk hver.
Markahæst í liði Fram var Hafdís Ebba Guðjónsdóttir (systir Díönu okkar) með 6 mörk. Næst kom Kristín Pétursdóttir með 5, Kristín Ragnarsdóttir skoraði 4, Hekla Daðadóttir (fyrrverandi leikmaður Hauka) skoraði 3 mörk, Hrafnhildur Sævarsdóttir 2 og Steinunn Anna Tómasdóttir, Katrín Tómasdóttir og Katrín Erla Gunnarsdóttir skoruðu 1 mark hver. Tvær Framstelpur fengu rauð spjöld, Hekla Daðadóttir (beint rautt spjald) og Kristín Ragnarsdóttir (þrjár brottvísanir). Samtals voru Framstelpur einni færri í 14 mínútur en Haukastelpur aðeins 4. Auk þess fékk Gústaf Adolf Björnsson (sem er fyrrverandi þjálfari Haukastelpna) einnig rautt spjald.
Dómarar leiksins voru dómarar sem enn dæma í N1 deildinni, Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson.