Einn dagur í Íslandsmót

Já það er rétt. Nú er aðeins einn dagur í að Íslandsmótið hefjist. Stelpurnar leika sinn fyrsta leik í N1 deildinni á morgun, fimmtudag, klukkan 20:00 í Framhúsinu við Safamýri. Strákarnir hefja svo leik í N1 deild karla á föstudaginn klukkan 20:00 í nýrri Vodafone höll Valsmanna að Hlíðarenda.

En eins og síðustu daga birtast hér fróðleiksmolar dagsins:

Karlamoli: Leikir Hauka og Vals hafa ávallt verið mjög spennandi og skemmtilegir leikir. Tímabilið 1996 – 1997 léku liðin á Strandgötu 21. september. Staðan í hálfleik var 12-14, Valsmönnum í vil, en leiknum lok svo með jafntefli 26-26. 
Markhæstur í liði Hauka var Gústaf Bjarnason með 7 mörk en næstu á eftir honum var Aron Kristjánsson með 6 mörk. Í markinu hjá Haukum stóðu Bjarni Frostason og Magnús Sigmundsson en Magnús er einmitt enn leikmaður liðsins. Einnig var Halldór Ingólfsson með Haukum á þessum tíma en sá gamalreyndi leikmaður er einnig ennþá leikmaður liðsins. Báðir leikmennirnir hafa þó farið frá félaginu í stuttan tíma, Magnús til FH og Halldór til útlanda. Dóri er að koma heim að nýju eftir árs fjarveru í Noregi þar sem hann þjálfaði lið Stavanger Handball en Magnús lék með okkar mönnum í fyrra eftir að hafa komið heim frá FH.

 

Kvennamoli: Díana hefur spilað gegn Haukum í fleiri liði en einu. Tímabilið 1995 – 1996 lék Díana með liði FH. FH liðið hafnaði í 9. sæti þetta tímabil meðan Haukastelpur höfnuðu í 3. sæti í deild og urðu að lokum Íslandsmeistarar.
Haukar og FH mættust tvisvar á tímabilinu. Fyrri leikurinn fór fram 26. nóvember 1995 á Strandgötu sem var þá heimavöllur okkar Haukamanna. Díana skoraði 3 mörk í þeim leik en leikurinn endaði með stórsigri okkar stelpna 31-18. Markahæst í Haukaliðinu var Hulda Bjarnadóttir, sem nú þjálfar 8.flokk, með 9 mörk. Dómarar leiksins voru Egill Már og Örn Markússynir.
Síðari leikurinn fór fram í Kaplakrika 28. apríl 1996. Þetta var í 18. og síðustu umferð deildarinnar. Í þessum leik, sem endaði með sigri okkar stelpna 20-15, náði Díana aðeins að setja eitt mark. Markahæst Haukastúlkna var stórskyttan Auður Hermannsdóttir með 8 mörk. Dómarar leiksins voru Hilmar Ingi Jónsson og Matthías Páll Imsland.

Þjálfarar liðanna á þessum tíma voru Petr Baumruk Haukamegin og Stefán Arnarson FH megin.