Þrír dagar í fjörið

Nú eru aðeins þrír dagar þar til Íslandsmótið í handbolta hefst. Þá leika stelpurnar okkar gegn liði Fram klukkan 20:00 í Framhúsinu. Á föstudaginn hefst svo Íslandsmót karla en strákarnir okkar fara þá í heimsókn í nýju Vodafone höllina að Hlíðarenda og leika gegn Íslandsmeisturum Vals. Fram að móti munum við birta hér á síðunni mola sem tengjast liðunum sem mætast á föstudaginn, eitt fyrir karlaliðið og eitt fyrir kvennaliðið á dag.

Karlamoli dagsins: Haukar og Valur mættust síðast á Ásvöllum í síðutsu umferð Íslandsmótins 22. apríl s.l. Valsmenn þurftu sigur til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn en okkar menn þurftu að sigra eða stóla á Stjörnuna að sigra Fylki til að halda sæti sínu í efstu deild. Valsmenn sigruðu 33-31 í hörkuleik, Stjarnan sigraði Fylki 30-27 og allir gátu fagnað á Ásvöllum.

Kvennamoli dagsins: Haukar og Fram mættust síðast á Ásvöllum 18. mars í 21. umferð Íslandsmótsins. Okkar stelpur sigruðu leikinn með tveggja marka mun, 29-27. Ramune var markahæst með 13 mörk og Hanna Guðrún kom næst með 10 mörk. Aðeins fimm leikmenn okkar liðs komust á blað, en fyrir utan Ramune og Hönnu skoruðu Harpa (3), Erna Halldórs (2) og Lilja Björk (1).