Það er orðið stutt í að Íslandsmót karla og kvenna hefjist. Stelpurnar okkar hefja leik eftir viku þegar þær heimsækja Framstelpur á fimmtudag klukkan 20:00 í Framhúsinu.
Daginn eftir heimsækja svo strákarnir okkar Íslandsmeistara Vals á nýjan heimavöll þeirra, Vodafone höllina á Hlíðarenda. Liðin mættust einmitt í síðasta leik síðasta tímabils þegar Valsmenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í svakalegum leik á Ásvöllum.