Í kvöld lék meistaraflokkur kvenna gegn Stjörnunni í hinum árlega leik meistarar meistararanna, en þá leika bikarmeistarar gegn Íslandsmeisturum síðasta árs. Leikurinn var háður í Garðabæ.
Haukastelpurnar voru yfir frá því í stöðunni 2-3 og höfðu gott tak á Stjörnunni allan leikinn. Hin sprettharða Hanna Guðrún Stefánsdóttir var markahæst í liði Hauka. Leikurinn endaði með sex marka sigri 32 – 26.
Það var gaman að sjá stelpurnar spila í kvöld. Þær höfðu mikið gaman af því sem þær voru að gera allan tímann og þær fögnuðu alltaf þegar eitthvað gekk upp hjá þeim.
Þetta er góð byrjun hjá Díönu Guðjónsdóttur sem tók við liðinu fyrir tímabilið af Einari Jónssyni. Vonandi verður áframhaldandi bikarsöfnun á Ásvöllum þetta árið enda alltaf nóg pláss þar á bæ.