Ragnarsmótið 2007

Dagana 22. – 25. ágúst fer fram Ragnarsmótið á Selfossi. Strákarnir okkar fara þangað og taka þátt og leika gegn Selfossi og Fram í riðlinum. Fyrsti leikurinn er á miðvikudaginn, 22. ágúst, klukkan 18:30 á Selfossi gegn Fram. Á fimmtudaginn er svo leikur gegn Selfossi, einnig klukkan 18:30.

Leikið verður svo um sæti á laugardaginn. Leikurinn um 5. sæti verður klukkan 12:00, 3. sæti verður klukkan 14:00 og úrslitin verða klukkan 16:00.

Í hinum riðlinum leika Stjarnan, Víkingur og U 17 ára landslið karla.

Við hvetjum fólk til að mæta og kíkja á strákana okkar spila.