Breytingar hjá meistaraflokkunum

Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi meistaraflokks karla í sumar.

Þrír leikmenn eru farnir frá félaginu, Árni Þór Sigtryggsson er farinn til Fraikin BM. Granollers á Spáni, Guðmundur Pedersen er farinn til baka í FH og Samúel Ívar Árnason er farinn til Elverum Handball í Noregi.

Að sama skapi eru komnir þrír leikmenn til félagsins, Gunnar Berg Viktorsson kemur frá Team Tvis Holsterbro í Danmörku, Gísli Guðmundsson kemur frá Ajax Kobenhavn í Danmörku og Arnar Jón Agnarsson er kominn til okkar frá Fylki.

Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma því að í brúnni er nýr maður, Aron Kristjánsson hefur tekið við starfi þjálfara meistaraflokks karla auk þess sem hann er framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar Hauka. Aron mun einnig sjá um yfirumsjón þjálfunar yngri flokka drengja. Aron þekkjum við að sjálfsögðu öll frá því hann lék með félaginu til margra ára en Aron er uppalinn Haukamaður og því kominn heim í Haukafjölskylduna.

Smávægilegar breytingar verða á kvennaliðinu. Einn leikmaður er kominn til liðs við félagið en það er Hind Hannesdóttir sem kemur frá Stjörnunni. Lilja Björk Hauksdóttir, sem kom til liðs við stelpurnar á síðasta vetri, mun ekki vera með í vetur þar sem hún á von á barni.

Eins og við vitum einnig er búið að skipta um þjálfara hjá stelpunum en Díana Guðjónsdóttir hefur tekið við þjálfun liðsins auk þess að sjá um yfirumsjón þjálfunar yngri flokka stúlkna.

Við bjóðum alla nýju leikmennina og þjálfarana velkomin í Haukafjölskylduna.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…