Námskeið fyrir eldri krakka

Íþróttaskólinn býður næstkomandi tvær vikur upp á auka handboltanámskeið fyrir krakka á aldrinum 11-14 ára. Námskeiðið er ekki hugsað fyrir byrjendur heldur þá sem hafa verið að æfa að kappi. Fyrra námskeiðið hefst þriðjudaginn 7. ágúst og það seinna mánudaginn 13. ágúst. Námskeiðið fer fram á Ásvöllum frá klukkan 16:00-17:00. Vikan kostar 3000 krónur, en séu báðar vikurnar teknar þá kostar það 5500 krónur. Ekki er þörf á að skrá sig heldur mæta tímanlega fyrsta daginn og skrá sig á staðnum. Þjálfari verður Jóhann Ingi Guðmundsson ásamt leiðbeinendum úr Íþróttaskóla Hauka.