Stelpurnar okkar fóru í kvöld í heimsókn í Garðabæinn og léku þar gegn Stjörnunni í fyrsta undanúrslitaleik deildarbikarsins. Stelpurnar okkar mættu í orðsins fyllstu ekki í leikinn andlega, aðeins líkamlega. Í hálfleik var Stjarnan komin með 10 marka forskot, 21-11, og þegar leiknum lauk var munurinn 15 mörk, 40-25.
Það vekur athygli allra hversu mikið má brjóta og Ramune okkar en nokkrum sinnum í leiknum var hangið aftan í henni, ýtt hressilega á bakið á henni og fleiri ljót brot en Stjörnustelpur komust upp með þetta og uppskára einu sinni gult spjalda og einu sinni tvær mínútur.
Næsti leikur hjá stelpunum er á fimmtudaginn og þá er að duga eða drepast. Þá taka þær á móti Stjörnunni í öðrum undanúrslitaleiknum og verður allt lagt undir. Leikurinn hefst klukkan 19:30 á Ásvöllum. Mætum og hvetjum stelpurnar okkar til sigurs.