Á morgun, þriðjudag, hefst deildarbikar kvenna. Þá fara stelpurnar okkar í heimsókn í Ásgarðinn og leika á móti Íslandsmeisturum Stjörnunnar. Leikurinn hefst klukkan 19:30.
Annar leikur liðanna verður svo á fimmtudaginn á Ásvöllum og hefst hann einnig klukkan 19:30. Ef til oddaleikjar kemur verður hann leikinn í Ásgarði klukkan 16:10 á laugardaginn.
Fjölmennum á leikina og styðjum okkar stelpur til sigurs. Við viljum að sjálfsögðu að stelpurnar komist í úrslit og draumur okkar er að sjálfsögðu að vinna keppnina. En það þarf góðan stuðning áhorfenda til að það gerist og hann kemur ekki nema fólk fjölmenni.
ÁFRAM HAUKAR!!