Síðasti leikur strákanna í vetur fór fram í dag þegar þeir tóku á móti Val sem átti möguleika á því að verða Íslandsmeistari, ef þeir myndu sigra. Valsmenn byrjuðu betur og náðu strax forskoti 2-3 mörk. Staðan í hálfleik var 13-16 Val í vil.
Í síðari hálfleik byrjuðu Valsmenn á því að auka forskotið en okkar strákar voru alls ekki á því að gefa þeim þetta á silfurfati. Þeir breyttu stöðunni úr 14-19 í 22-22 og eftir það var leikurinn í járnum. Valsmenn náðu aftur forskoti, 24-27, en okkar strákar minnkuðu muninn í 28-29 og 30-31 en þá gerðu Valsmenn út um leikinn og sigruðu að lokum 31-33.
Valsmenn urðu með þessu Íslandsmeistarar og óskum við Haukamenn systrafélagi okkar að sjálfsögðu til hamingju með titilinn.
Það var ánægðulegt hve margir komu á Ásvelli í dag og hve stemningin var góð. Fyrirleikinn var ljósa-"show" og kveikti það enn frekar í stemningunni sem strax myndaðist fyrir leik. Áhorfendur beggja liða stóðu sig mjög vel og var leikurinn skemmtilegur bæði innan vallar sem og utan.
Eins og við Haukamen vitum þá var þetta síðasti leikur Páls okkar Ólafssonar og hefði því verið skemmtilegra að enda þetta með sigri.