Stelpurnar í Höllina

Stelpurnar komust í kvöld í úrslit SS bikarsins eftir frábæran sigur á Val, 25-18. Þessar tölur gefa hins vega alls ekki neina mynd af leiknum. Haukastelpur skoruðu fyrstu 3 mörkin. Þær komust svo í 8-2, 13-2 og loks 14-3 í hálfleik. Hreint ótrúlegt að efsta lið deildarinnar skuli skora þrjú mörk í fyrri hálfleik í undanúrslitaleik.

Síðari hálfleikurinn var mjög svipaður og sá fyrri, þrátt fyrir að Valsstelpur hafi skorað töluvert fleiri mörk en í þeim fyrri. Það var aldrei nein spurning um hvort liðið kæmist í úrslit. Stelpurnar okkar komust í 23-11, 24-13 og unnu svo að lokum 25-18.

Helga Torfadóttir stóð sig frábærlega í markinu og varði 22 skot. Markahæst í liði Hauka var Sandra Stojkovic með 7 mörk, en Hanna Guðrún skoraði 6 og Ramune 5.

Stelpurnar eru því komnar í úrslitaleikinn sem fer fram 10. mars í Höllinni þar sem þær leika gegn Gróttu. Allir Haukamenn verða því að taka laugardaginn 10. mars frá því þá spilum við til úrslita!!

ÁFRAM HAUKAR!!!