Í kvöld fór fram bikarleikur Hauka U og ÍR. Haukastrákarnir byrjuðu leikinn vel og spiluðu mjög vel í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 11-11 eftir að jafnt hafði verið á nánast öllum tölum allan hálfleikinn.
Í síðari hálfleik komu Haukastrákar hreinlega ekki til leiks. ÍR ingar náðu strax góðu forskoti og sigruðu að lokum 19-32. Haukar U eru þá úr í bikarkeppninni en ÍR ingar komnir í undanúrslit.